|
Spilaklúbburinn "Höskuldur"
Áhugaverðir staðir hjá okkur
|
10.01.2007 09:45:12 / danskur
Ég er bara að skrifa smá hérna inn svo að þeir hjá mbl.is loki ekki
þessu bloggi. Annars er bloggið okkar á www.danskur.squarspace.com
Við nefnilega gáfumst uppá þessari síður þar sem hún er mjög lengi
að hlaðast inn (kanski tölvan okkar) og svona ýmislegt annað við
þessa síðu. Til dæmis er ég búinn að vera hérna og spá í hvað ég
ætti að skrifa (ca. 5min) og það er ekki búið að hlaðast inn texta
möguleikar í hausnum, Þá ryfjaðist upp fyrir mér afhverju við
gáfumst upp á að skrifa hérna. Hilsen Gauz family
»
05.09.2006 01:13:40 / danskur
Tad er allt i lagi med okkur, søknum ykkar bara, tess
vegna latum vid svona. Nytt blogg a hinni sidunni
»
02.09.2006 16:13:33 / danskur
Við þessi litla einmanna fjölskylda sem býr hérna í Harlev
Danmörku erum ekki alveg nógu ánægð með vini okkar og fjölskyldur
þar sem það hefur glögglega komið fram á heimsóknum ykkar hérna á
síðuna að þið eruð búin að gleyma
okkur . Það er greinilegt að þið eruð orðin of upptekin á
lífsgæðakapphlaupinu. Getum bent á þetta með þeim staðreyndum
að það hafa bara verið 30 heimsóknir alla síðustu viku. Það
er ekkert sem þið þurfið að breyta til að fara inná nýju síðuna
okkar, bara að koma hér inn og klikka á linkinn hérna að
neðan. SKAMM SKAMM svo er líka hægt að
heimsækja okkur hérna út nóg af plássi.
http://danskur.squarespace.com/
»
23.08.2006 20:24:28 / danskur
http://danskur.squarespace.com/
Ykkur sem langar að segja ykkar álit eða bara koma
einhverju skemtilegu til skila endilega skrifið það á nýju síðuna.

»
21.08.2006 07:42:15 / danskur
Sko við erum að reyna nýja bloggsíðu og það væri gaman
ef fólk vildi gefa sitt álit.
http://danskur.squarespace.com
Kveðja Gaui og Dikka
Anjĕ牢
»
18.08.2006 13:48:04 / danskur
Föstudagur og við höfum bara alls ekki verið nógu dugleg að
blogga, ég held að ég verði duglegri þegar maðurinn minn er farinn
í skóla aftur því þá er talvan oftar laus og mér leiðist .
Auðvitað kemur mér ekki til með að leiðast en þá er hann ekki
allavegna ekki að þvælast fyrir mér
Við fengum kerruna hjá Írisi og Jóa og fórum í garðvinnu,
Guðjón reif upp keðjusögina og gerði sér lítið til og klippti
sjónvarpskapalinn í sundur. Ekki gat hann lagað það sjálfur
(held að honum sé eitthvað að förlast rafvirkjahöndin ) þannig að
við hringdum í rafvirkjan hérna í bænum en hann þóttist heldur ekki
geta lagað þettað svo að við hringdum í sjónvarpsfyrirtækið og komu
þeir í morgun og löguðu kapalinn. Þetta litla klipp kostar
sennilega um 1.000 dkr  En Guðjón kláraði nú að
klippa hekkið í morgun og síðan tókum við að sjálfsögðu til í
arfanum og skildum tegundum. Slógum grasið líka en það var
heldur vaxið eftir alla rigninguna sem við höfum fengið sl vikur.
Núna lítur garðurinn bara sæmilega út þrátt fyrir skallabletti í
grasinu, núna er sko líka stundað hopp á trambolíni, fótbolti
(við nýja markið sem Sigvaldi smíðaði) golf í einhverju mæli og
aðra umferð eins og sipp, eltingarleik og fl. Í garðinum eru
ca 8-10 boltar af öllum stærðum og gerðum sem rúlla um í garðinum
eða eru /voru fastir í hekkinu og hafa komið í ljós aftur eftir
þónokkra fjarveru.
Komandi helgi einkennist af fótbolta Elna er að keppa í
turneringu á morgun og SFHekla á sinn fysta leik á
haustönninni. Sigvaldi keppti í gær og þeir unnu,
Sigvaldi setti 2 inn og tryggði sigur, verð nú að setja inn
setningu hérna í lokinn sem þjálfarinn sagði um hann á síðu
liðsins í gær
Kampens spiller vurderet af træneren blev Sigvaldi, da han holdt
sig til det vi talte om inden kampen, og stod for et stort
løbearbejde som gjorde at ansigtkuløren fik en lidt anden
farve end de farver der er i det Islandske flag.
Við segju góða helgi gott fólk, kv Dikka
ps. Afi minn hann í föðurætt hefði orðið 100 ára í dag, til
hamingju afi afi minn í móðurætt hefði líka orðið hundrað og
eitthvað í dag, til hamingju afi
»
13.08.2006 17:08:25 / danskur
Á þriðjudaginn fórum við í heimsókn til Drífu, Dodda og
strákanna sem voru að passa sveitabæ rétt hjá Viborg og endaði það
að sjálfsögðu með því að við gistum þar og áttum virkilega notalega
stund með þeim. Þarna eru ísl.hestar, hundar og kindur, það
var einnig hægt að fara í þessa fínu sundlaug sem var að sjálfsögðu
nýtt í þessu fina veðri. Dikka hrærði í pönnukökur og voru
þær bakaðar í sveitinni því það er ekki hægt að baka þær á okkar
flottu eldavél . Var pönnsunum rent niður með dýrindis
kaffi og mjólk, um kvöldi var grilluð svínalund og tókst það bara
vel. Við þökkum þeim Drífu, Dodda og drengjum fyrir frábærar
móttökur og gistingu.
Það er kominn sunnudagur og við komum í gærkveldi heim úr
tjaldútilegu númer tvö og heppnaðist hún í alla staði vel. Við
fórum sem sagt á fimmtudaginn til Fredrikshavn á mjög gott
tjaldstæði og gistum þar tvær nætur í fínu veðri, rigndi smá fyrsta
kvöldið en var svo þetta indælisveður daginn eftir. Var byrjað á
því að fara í sund eða allavegna þeir sem voru vaknaðir og var þar
fjölskyldukeppni með sundbolta og við unnum að sjálfsögðu, síðan
var haldið af stað útá Skagen sem er nyrsti oddi Danmerkur og tvö
höf mætast þeas Atlantshafið og Eystrasaltið. Fengu við þetta fína
veður til að ganga þarna útá oddann en á leiðinni til baka fóru
óveðurský að hrannast upp með tilheyrandi þrumum og roki ekki
máttum við vera seinni í bílana því það gerði líka þessa rosalegu
rigningu um það leiti sem við skriðum inní þá. Það rigndi vel þann
tíma sem við vorum að keyra heim í tjald og þegar þangað var komið
stytti fljótlega upp og var þurrt alveg fram yfir hádegi á
laugardeginum. Við náðum að pakka saman tjaldinu og koma dótinu
inní bíl rétt áður en rigningin steyptist yfir okkur aftur. Þar sem
við vorum orðin svona blaut var ákveðið að fara bara aftur í sund
nema Karen, Hjörtu og Co drifu sig heim þar sem mamma hennar og
fósturpabbi áttu að fljúga til Íslands á sunnudeginum en tau voru
med i utilegunni. Þannig að við vorum eftir með Svenna, Helenu og
börnum. Þau fóru svo heim eftir sund og við leyfðum börnunum að
spila svona vatnsmíni golf en þá sáum við Hjörvar og Huggó en við
áttum von á Halla, Hrönn, Gumma og Möggu á svæðið en þar sem það
rigndi svo mikið á leiðinni hjá þeim ákváðu þau að leigja sér Hytte
í staðin fyrir að tjalda. Við stoppuðum aðeins hjá þeim en héldum
svo heim á leið þar sem Sigvaldi átti að taka þátt í stefnu í næsta
bæ sem heitir Sabro í dag sunnudag. Það var líka þessi ausandi
rigning á heimleiðinni og það voru feignir ferðalangar sem komu
heim um hálf átta leitið í gærkveldi. Þegar við komum heim
uppgvötuðum við að þakgluggi sem hafið lekið var eiginlega farinn
að mígleka og var komið vatn niður á jarðhæðina hjá okkur, ekki
mikið og ekki sjáanlegar skemmdir en allavega er búið að tala við
smið til að skoða þetta og gera okkur tilboð til að laga það svo.
Sigvaldi tók sem sagt þátt í þessari stefnu í Sabró í dag og gekk
það aldeilis vel hjá honum og hans liði þar sem þeir töpuð ekki
leik og fengu bikar í lokin. Sigvalda gekk að vanda vel en skoraði
samt bara eitt mark. En hann var mjög ánægður í leikslok með
árangurinn því þeir fengu stóran bikar og flotta verðlaunagripi. Ég
náði nú að taka upp einn leikinn en það er stefnan að reyna koma
honum á netið sem fyrst ef það er hægt, einnig af leiknum sem hann
spilaði á Stadium. Dikka er að fara á næturvakt sem er aukavakt því
hún er orðin svo fégráðug, nei það veitir víst ekki af pening núna
til að gera húsið vatnsþétta á ný því það spáir bara meiri rigningu
og ekki leist mér á spánna í gær fyrir mánudaginn því það var spáð
34mm rigningu en þeir eru nú búnir að minnka það eitthvað en það
rigndi 80mm á Skanderborgar tónleikahátíðinni í gær og var allt á
floti þar. Nú nenni ég ekki að blaðra meiri fréttir af okkur í bili
og biðjum við að heilsa öllum til sjávar og sveita
»
07.08.2006 21:49:29 / danskur
Þá er þessi helgi búin og Sigvaldi er heldur betur búin að
upplifa skemmtilega daga. Fótbolti og aftur
fótbolti. Turneringin á laugardaginn gekk vel hjá HIK og þeir
enduðu í öðru sæti eftir æsispennandi úrslitaleik.
Sunnudagurinn var mikil upplifun fyrir strákana í fótboltanum og
líka okkur áhangendur þeirra. Þeir spiluðu forkamp á
aðalvellinum í Aarhus og unnu hann 1-2 og þar af leiðandi fengu
þeir að leiða AGF liðið inná völlinn þegar þeir fóru að keppa rétt
á eftir. Sigvalda fannst mesta upplifunin vera að spila á
vellinum. Hann sagði að þegar hann gekk inná völlinn þá höfðu
fæturnir hans skolfið og honum fannst hann ekki einbeitt sér
almennilega vegna þess að hann hafi verið svo spenntur. Hann
spilaði ´nú samt ágætlega drengurinn. Foreldrar og
fjölskyldur sátu og hvöttu þá með miklum látum. Strákarnir
fengu skoðunnarferð um völlinn og búningsaðstöðu en völlurinn tekur
rúmlega 20 þús manns í sæti. Síðan skokkuðu þeir inná með
aðalliðinu inná völlinn og sátu svo á besta stað og horfðu á
leikinn. Við Guðjón sáum að Elna og Símon geta alveg farið á
völlinn þegar stemmingin er svona gríðarleg því þau sátu bara og
voru hálf hissa á þessum látum. Við vorum á vellinum í 4 tíma
og það var bara ekkert mál fyrir þau. AGF tapaði reyndar
leiknum á móti Nestved 2-3 en ok. með það.
Alveg andlaus í skriftum núna enda klukkan að verða 00 og tími
til að fara að sofa.
kveðja til lesenda Dikka
»
05.08.2006 00:51:31 / danskur
Jæja ta er madur ordinn arinu eldri, adeins klokari og
reynslunni rikari. A sidasta ari hef eg t.d. i fyrsta sinn
verid med fjølskyldunni minni " ein" um jol, keypti fyrsta
tjaldid, for i fyrsta sinn til Svitjodar, for i frabæra ferd
til Spanar tar sem øll min fjølskylda var saman komin (mæli ohikad
med og myndi gera tad aftur a morgun ef tad væri i bodi)og ad
sjafsøgdu margt fleira. Sem betur fer gengst eg ekki upp i
aldri og tarf nanast alltaf ad reikna ut hve gømul eg er tegar eg
er spurd. Ad sjalfsøgdu er eg og verd alltaf jafn ung i anda
og tala nu ekki um ungleg to eg er alltaf talin vera eldri en Bina
en hun er audvitad bara unglingur   
Jæja hvad ødru lidur ta er eg a næturvakt og tad er svosem
ok, talandi um aldur ta er eg ad passa konu sem er jafngømul
og eg og hefur verid hraust tangad til i fyrradag en ta for hun til
læknis med verki vid tindina og hun var send heim med verkjalyf og
daginn eftir lagadist tad ekki tannig ad hun for aftur til læknis
og var løgd inn a sjukrahus med lungnabolgu og liggur nu i
øndunnarvel og i septisku sjokki og mikid veik. Svona er lifid, en
tegar madur getur sed jafnaldra sina i tessu astandi ta er eitthvad
sem segir voovv
En ad ødru, Sigvaldi er nuna i æfingabudum i fotboltanum og tær
eru ca 150 metra fra heimilinu okkar en tad byrjadi med hjolatur
12-15 km og svo æfing eftir tad og svo var bordad saman og aftur
lett æfing i frabæru vedri. Sofid i klubbhusinu i nott og svo
er turnering a morgun vid 3 ønnur lid. A sunnudaginn fer svo
lidid hans a adal stadiumvøllinn og spilar forkamp a vellinum vid
AGF lid (jafnaldra) og fær svo ad ganga inna vøllinn med AGF
meistarflokknum tegar teir fara ad keppa vid Kolding. I
halfleik fara teir svo aftur inna vøllinn og fa aritadann
bolta. Tetta verdur mjøg spennandi fyrir ta og okkur
lika.
Vid vorum i afmæli i gær hja henni Ylfu sem byr i Lystrup og hun
vard 5.ara. Hun a nefnilega sama afmælisdag og eg .
Gaman ad hitta folkid her eftir ad margir hafa verid um heimsins
høf ad ferdast nuna i sumar.
Vinnan bidur, kv Dikka
»
30.07.2006 11:20:43 / danskur
Það er ennþá þessi frábæri hiti hérna í Danmörku sem sagt
heitasti júlí mánuður síðan mælingar hófust. Hitastigið hefur ekki
farið undir 25 gráður og er ég svo heppinn að vera í sumarfríi í
þessum ósköpum og ekki þarf maður að borga rándýra ferð til Spánar
þótt við séum reyndar búin að fara þangað. En af okkur er allt gott
að frétta, Dikka vinnur og vinnur til þess að ég geti verið í
sumarfríi Það að ég skuli vera í sumarfríi í allt sumar orsakast
af því að við þurfum að taka börnin af leikskólanum / SFO í tvær
til þrjár vikur þannig að það var ómögulegt að vinna á þeim tíma en
það er enn séns í ágúst en er ekki viss um að ég nenni því. Annars
er algert leti líf á mér og börnunum, förum mjög seint að sofa og
vöknum ennþá seinna á morgnana. Símon er meira að segja farinn að
sofa lengi á morgnana. Sem er ágætt en það verður nú eitthvað að
fara snúa ofan af þessu leti lífi strax á morgun því þá byrja Símon
og Elna aftur á sínum dagvisturnnar stofnunum.
Annars vorum við að fá fleirri Íslendinga hingað til okkar í
Aarhús, Tommi, Magga og börn voru að flytja hingað. Tommi var í
sveit hjá Sigvalda og Sonju til margra ára. Erum við að sjálfsögðu
búin að bjóða þeim í mat og golf. Þetta byrjaði á því að við fórum
og hjálpuðu þeim að koma búslóðinni inn og svo var þeim boðið
hingað til okkar í huggudag sem byrjaði á því að ég þurfti að reyna
að ná úr mér þynkunni og svo var haldið af stað í golf þ.e.a.s. ég,
Tommi og Sigvaldi spiluðum 9 holur og síðan var fengið sér smá öl
og grill. Mjög góður dagur með þeim. Hjörtur, Karen og Elí komu
hingað til okkar á miðvikudagskvöldið með spil undir hendinni og
fengum við smá skammt af ferðasögum og svo var spilað fram eftir
nóttu og kláruðum við nokkra öl með og kom þar skýringin á þessari
þynnku minni fyrir golfferðina góðu. Nenni ekki að segja frá fleiru
í þetta sinnið, það er of heitt til að hugsa um hvað ég á að
skrifa.
Biðjum að heilsa öllum Kveðja Gaui, Dikka og börn
»
24.07.2006 18:20:09 / danskur
Nu er timi kirsuberja kominn og vid høfum hreinlega svo mikid af
kirsuberjum a trenu okkar ad vid høfum verid ad gefa nagrønnum og
vinnufeløgum med okkur. Tetta er audvitad frabært ad hafa
svona tre i gardinum okkar en fyrri huseigendur hafa samt
aldrei fengid ber af trenu Eg vil takka trambolininu i gardinum
okkar sem hefur fælt megnid af fuglunum fra og teim sem ekki
fældust teim var heftur adgangur med neti sem vid Gudjon settum
utanum treid. Vid erum sem sagt i kirsuberjatinslu en ekki
krækiberjatinslu tessa dagana.
Annars allt tad sama ad fretta, eg er i vinnuni eins og
tid sjaid a letrinu herna. Gudjon er heima ad klara ad fuga i
eg held ad nagrannarnir okkar halda ad vid seum ekki alveg heil a
gedi ad vera ad flisaleggja golfid tarna tad kom
undrunarsvipur a tau tegar tau komu ur friinu sinu a laugardaginn
og sau ad Gudjon la tarna sveittur a golfinu og vara ad lima
flisar. Nuna held eg samt ad tau verdi bara græn af øfund
tegar tau sja hvad tetta er ordid flott hja okkur.
Planid er ad fara a strøndina a midvikudaginn en ta er spad
godum hita. Annars er juli manudur heitastur i søgu
Dana tetta arid , vid erum ekkert ohress med tad, en rakinn
mætti vera minni.
Besta ad fara ad vinna aftur, b.k. Dikka ofurhjukka
»
22.07.2006 16:37:16 / danskur
Þá erum við orðin öll aftur eftir að Sigvaldi okkar kom heim í gær.
Það var mikill fagnaðarfundur þegar við fórum að ná í hann á
Kastrup í gær enda langt síðan við höfum séð stóra strákinn okkar
eða um einn mánuður. Drengurinn kom aðeins stærri en ég er ekki frá
því að hann hafi verið aðeins fölari þar sem ekki fór mikið fyrir
sólinni á Íslandi. Hann hafði náð töluverðum lit áður en hann fór
frá Spáni og þarf því að hafa sig allan við ef hann ætlar að ná
okkur hinum, hehe. Annars er það helsta að frétta að Guðjón svitnar
og svitnar hérna út í skúr við að leggja flísarnar. Hann var nú að
leggja síðustu flísina áðan og er að velta fyrir sér að byrja að
fúa í kvöld þar sem þvottavélin, ískápurinn og frystikistan standa.
Þetta er hörku púl í þessum hita og raka þvi maður þarf nú ekki
annað en að hnerra en þá svitnar maður þokkalega. Það sem hefur
sennilega bjargar hans vökvabúskap er bjórinn í ískápnum  ískaldur
og svalandi. Ég er að vinna ansi þétt núna næstu þrjár vikurnar þar
sem allir aðrir eru í sumarfríi á minni deild. Hér
kem6gtu7u57ghyethythythur smá kveðja frá honum Símoni
4cdeasrfffffffffffffffffffffffffffffff, hann biður sem sagt að
heilsa. Við viljum auðvitað þakka öllum fyrir hann Sigvalda okkar
meðan hann var á Ísl. og fyrir allt sem hann kom með. Hann kom nú
t.d. með fjall af cheeriosi og lucky charms og á því munum við lifa
langt fram á haust. Takk, takk. Síðan viljum við óska afmælisbörnum
til hamingju með afmælin, Óla amma til hamingju með afmælið.
Guðbjartur Árni til hamingju með afmælið þitt og Inga Dóra til
hamingju með afmælið þitt. Að sjálfsögðu óskum við líka öllum hinum
sem hafa átt afmæli til hamingju.  Núna biðjum við að heilsa í
bili, ætla að fara að spæla egg ofaní liðið, kv Dikka
»
18.07.2006 20:53:08 / danskur
Komiði sæl öll nær
og fjær, ég vildi bara láta vita af því að það er sko sumar
hérna hjá okkur í Harlev, búið að vera frábært veður og
Danskurinn man bara ekki eftir öðru eins. Kannski var
svona gott veður fyrir þrem árum þegar það dóu 15000 manns í
Frakklandi vegna hita 
Annars er allt gott að frétt af okkur hérna,
Dikka farin að vinna svo að ég geti verið í sumarfríi í allt sumar
og klárað verkefnalistann sem hún er búin að vera setja saman í
allan vetur. Ég er nú aðeins að blóta þeim á Íslandi núna
fyrir að vilja ekki fá mig í vinnu svo að ég gæti sloppið við
þennan langa lista sem bíður mín núna. Þetta er farið að hafa
áhrif á golfið hjá mér og það gengur nú ekki Það
nýjasta er að ég á að fara flísaleggja þvottahúsið og gera það
fínt, það er eins gott að frúin vinni nú dag og nótt til að borga
þessar flísar sem hún verslaði í Bauhaus í dag, enda var hún að
fara á næturvakt greyið. En þetta reddast eins og alltaf ég
næ að koma þessum flísum á og hún að vinna fyrir þeim.
En nú fer heldur betur að styttast í að
íþróttagarpurinn komi frá Íslandi og eru allir farnir að sakna hans
hérna, þegar við erum nýbúin að tala við hann á msn eða skype þá
heyrist í litla bróður sem er með grátstafina í kverkunum að hann
vilji fara til Sigvalda síns. Hann kemur sem sagt á næsta
föstudag og ætla systkyni hans að leggja það á sig að keyra til
Köben fram og til baka bara til að ná í stóra brósa. En
annars var hann að gera gott mót þarna á íslandi bæði í fótbolta og
frjálsum íþróttum. Sem sagt eftir ESSO mótið á Akureyri
smellti hann sér til Gullu frænku og þeirra á Tálknafirði og tók
þátt í héraðsmótinu í frjálsum þar. Það er ekki að spyrja þar
sem hann er óhugnalega líkur föður sínu að hann sópaði að sér
verðlunum þarna fyrir vestan, uppskeran var fjögur gull og eitt
brons, geri aðrir betur. Skilst okkur að þetta verði næsta
íþrótt sem drengurinn ætlar að fara æfa hérna úti og er ég búin að
tapa tölunni á öllum þessum íþróttum sem hann iðkar en allt gott um
það að segja. Elna okkar ætlar að fara æfa handbolta og sund
segir hún og geri ég nú ráð fyrir að hún byrji í þessu allavega er
hún orðin góð í að synda/hundasund í ísköldum vötnum og sjóm hingað
og þangað um Skandinaviu. Símon er alltaf að verða meiri og
meiri grallari, ég held að hann ætli að taka þetta út fyrir þá
bræður því Sigvaldi var alltaf svo rólegur en Símon er getur séð um
þetta fyrir þá báða held ég bara.
Nú er best að hætta þessu blaðri og fara koma
sér að hinum fræga lista
Bið að heilsa eða við biðjum að
heilsa
Gauz og family
»
16.07.2006 15:11:38 / danskur
Við erum komin heim aftur eftir túr til Sverige. Þetta var góð ferð
þar sem við meðal annars heimsóttum Dísu og Ásgeir í Götaborg og
gistum þar fyrstu nóttina þar sem rigningin tók á móti okkur þegar
við keyrðum til Götaborgar. Seinni tvær næturnar vorum við svo á
tjaldstæði í nýja tjaldinu okkar. Það lukkaðasti bara mjög vel og
sáum við fjölskyldan að þetta getum við gert aftur og þá gjarnan
með Sigvalda okkar. Hans söknuðum við að sjálfsögðu í útilegunni.
Við gistum við vatn þar sem var lítil sandströnd og við hana voru
leiktæki fyrir börnin. Við sáum nú ekki börnin því þau léku sér
bara við vatnið og hina krakkana á svæðinu sem voru Íslendingar og
Norðmenn. Það var því auðvelt fyrir þau að tala við alla. Við fórum
líka til Jóns Hreggviðssonar og hans fjölskyldu sem búa í tveggja
tíma fjarlægð frá Götaborg. Þetta var því fín ferð í alla staði. Í
gær fórum við svo í sól og blíðu á tónleika í Aarhus með honum
Sting. Það var alletiders tónleikar. 12500 manns og það versta var
að við stóðum frá klukkan 19 til 22,30 og allt blóð var í stóru
tánnum okkar  En Sting er góður það má hann eiga og ég held að ég
fái mér bara tónleika disk með honum á Dvd til að sjá hann í
nærmynd. Við stóðum nú ekki alveg við sviðið heldur á bak við
vírgirðingu sem var utanum ljósin og man ekki hvað þeir heita sem
stjórna hljóðinu og því öllu. Það sást ágætlega í karlinn í gegnum
vírgirðinguna   Í dag var farið með Símon á hjólinu á
fótboltavöllinn hérna í bænum og hjálpardekkin tekinn af og minn
maður þrufti eitt puss og síðan var hann farinn af stað og hann kom
okkur og sjálfum sér svo á óvart að það hlóu bara allir. Það þarf
nú aðeins að æfa startið og stoppið betur en annars gekk þetta
ljómandi vel. Núna er hún Ljóska í heimsókn hjá okkur en hún er
hundur Írisar og Jóa. Þau skruppu í frí í nokkra daga og ætlar
Ljóska að vera hjá okkur á meðan. Þetta veldur mikilli gleði hjá
börnunum og það er búið að fara með hana í góðan göngutúr og núna
liggur hún sofandi í skugganum enda mjög heitt úti eða um 30
gráður. Vinnudagur á morgun og Guðjón og börnin ætla að hugga sig
hérna heima. bestu kv. dikka
»
10.07.2006 17:46:40 / danskur
Mánudagur og við erum búinn að svitna í dag við þrif og önnur
húsverk. Ég er nánast búin að þrífa allt húsið (ekki veitti víst
af) og maðurinn minn er búin að þvo ruslatunnuna  og úða á
illgrésið í garðinum og umhverfis húsið. Síðan tókum við þá
ákvörðun þar sem Drífa og Þórður komast ekki með okkur í
útilegu  , að fara til Svíþjóðar í útilegu. Þar ætlum við að
hitta vini okkar Ásgeir og Dísu og krakkana þeirra sem búa í
Götaborg og líka að athuga hvort frændi hans Guðjóns hann Jón
Hreggviðsson og hans fjölskylda séu heima en þau búa rétt fyrir
utan Götaborg. Útilegu stemmningin verður sjálfsagt meira í
heimsóknum heima hjá fólki ekki nema við bjóðum liðinu í tjaldið
til okkar  . Ég hef nú aldrei komið til Svíþjóðar áður og Guðjón
ekki heldur þannnig að þetta verður jómfrúarferð hjá okkur öllum.
Við verðum nú reyndar að vera komin heim á föstudaginn þar sem við
erum að fara á Sting tónleikana okkar á laugardaginn  Í fyrsta
sinn í okkar sögu fórum við í Ikea og komum út í plús fjárhagslega
séð. Við fórm nefnilega með hillur sem við keyptum í síðust ferð
sem við gátum ekki notað. Alltaf gaman að upplifa svona ferðir inná
milli. Það er líka svo brilliant hérna í Dm að maður fær peningana
til baka en ekki einhverja inneignarnótu, ekki það að það hefði
ekki verið vandamál að kaupa eitthvað í Ikea fyrir inneignina.
Essomótið er yfirstaðið hjá honum Sigvalda okkar á Akureyri. Þar
var hann að keppa í fótbolta með félögum sínum úr HK. Ég held nú að
það hafi nú bara gengið ágætlega en við fáum betri skýrslu þegar
kappinn kemur heim til okkar. Við erum nú farin að sakna hans
allverulega. Símon grét hér fögrum tárum eftir að hafa talað við
hann í símann í gær  en það verður bara meiri tilhlökkun þegar
hann kemur til okkar aftur. Núna er Sigvaldi farinn á Tálknafjörð í
fjörið hjá frænda sínum honum Kristjáni. Eitthvað á nú að kíkja á
frjálsíþróttaæfingar þar sem mót er um næstu helgi og ætlar
Sigvaldi kannski fá að skokka eitthvað með þar. Svo fer hann
örugglega eitthvað í pollinn  Sigvaldi fór nú með ömmu sinni Ólu í
Grímsnesið í gær og hitti þar hina ömmuna sína og afa. Þar voru
Bína og Bjössi og strákarnir þeirra líka. Ég er nú alveg viss um að
þau hafi nú eitthvað farið í heita pottinn líka. Það er best að
fara að pakka einhverju útilegudóti niður, spennandi að sjá hvort
maður man þetta ennþá  bestu kv Dikka
»
Síður: 1 2 3 ... 18
|
|